Í Raunheimum er ellefta breiðskífa hljómsveitarinnar Nýdönsk. Hún var tekin upp við bestu aðstæður
í RealWorld hljóðverinu á Suður Englandi.
Hljómplatan inniheldur 9 glæný lög, þar af eitt af vinsælustu lögum landsins um þessar mundir,
Fullkomið farartæki.
Vínyllinn er hinn eigulegasti því hann er 180 gramma, litaður og gegnsær í tvöföldu umslagi með
ljósmyndum frá upptökuferlinu í Real World og söngtextum laganna.
Nýdönsk skipa þeir Daníel Ágúst, Björn Jörundur, Jón Ólafsson, Stefán Hjörleifsson og Ólafur Hólm.
Að auki var Guðmundur Pétursson þeim dýrmætur liðsauki við gerð plötunnar.
Útgáfudagur er 31. janúar.