Þann 31. október fögnum við útgáfu á okkar fyrstu safnplötu – Að standa á haus – en hún hefur að geyma skemmtilegan þverskurð af spennandi ungu tónlistarfólki sem á það sameiginlegt að hafa komið fram á fyrstu tónleikaröðinni sem haldin var í Tónabíó en platan er gefin út í samstarfi við Tónabíó RVK Bruggfélag. Platan inniheldur 13 lög með ungu upprennandi tónlistarfólki, lög sem flæða vel og varpa ljósi á sköpunarkraftinn og fjölbreytileika tónlistarsenunnar á Íslandi dagsins í dag.
„Að standa á haus“ var fyrsta tónleikaröðin sem haldin var í RVK Bruggfélagi/Tónabíói. Fjölbreytt úrval af spennandi íslenskri tónlist var flutt í hverri viku í sex mánuði. Þessi safnplata inniheldur aðeins lítið brot af þeim tónlistarmönnum sem tóku þátt í þessari tónleikaröð.
Umsjón og listræn stjórn útgáfu var í höndum Maria-Carmela Raso
Mastering Ægir Sindri Bjarnason
Umslag plötunnar gerði Katerina Blahutova
Útgáfustjórn Reykjavík Record Shop