Tilboð!

AAIIEENN – Phonetically Ayen

Original price was: 6.599kr..Current price is: 5.499kr..

Phonetically Ayen er þriðja plata tónlistarmannsins AAIIEENN sem er hugarsmíði Hallmars Gauta Halldórssonar. Um er að ræða framsækna raftónlistarplötu sem sækir innblástur sinn í IDM (Intelligent dance music) og raftónlist frá 10. áratugnum. Phonetically Ayen er frumleg plata sem fer með hlustandann í fallegt og hugvekjandi ferðalag og er um leið glæsileg viðbót í ört vaxandi kima íslenskrar raftónlistar.

Platan kostar 5.499 kr. á forsölutilboði þar til hún kemur út núna síðar í maí.

A1 Byrjunin
A2 Monolithic
A3 Ortholinear
A4 Wideband
B1 Bugun
B2 Zebra Knows Best
B3 Burst Event
B4 Main Menu
C1 Dugaradar
C2 Buzzer
C3 Cluster Beacon

Vörunúmer: RRS-080 Flokkar: ,

AAIIEENN hefur með Phonetically Ayenút tekið stór skref í tónlistarsköpun sinni en hann sækir innblástur víða. Á plötunni er að finna flott stef og áhugaverðar stemmur sem minna á og kallast á við tónlistarfólk og hljómsveitir á borð við Aphex Twin, Autechre, Funckarma, Proem, Múm, GAS og Orb. Allur hjóðheimur plötunnar er útpældur hvað varðar laglínur, trommutakta og hljómaganga en Hallmar er gítarleikari í grunninn. Hallmar naut aðstoðar frá Hrafnkeli Líndal Arasyni við gerð plötunnar og upptökur en þeir eru báðir þaulreyndir í upptöku og sköpun raftónlistar og því gekk mjög vel að taka upp og útsetja plötuna. Friðfinnur Oculus sá um masteringu og Þórir Georg sá um hönnun plötualbúms en Hallmar Gauti tók ljósmyndirnar.

Phonetically Ayen er útgáfa númer RRS-080 hjá plötuútgáfu Reykjavík Record Shop og kemur á tvöföldum vínyl sem er annars vegar blár og svo hvítur sem er í stíl við ljósmyndina á kápu plötunnar.

Aðilar:

AAIIEENN er Hallmar Gauti Halldórsson. Hallmar Gauti semur öll lög plötunnar en lögin Main Menu og Burst Event samdi hann ásamt Hrafnkeli Líndal
Hrafnkell Líndal sá um upptökustjórn á lögum

Hljóðjöfnun: Friðfinnur ‘Oculus’ Sigurðsson

Hönnun og uppsetning á umslagi: Þórir Georg Jónsson
Ljósmynd: Hallmar Gauti Halldórsson

Útgáfustjórn: Jóhann Ágúst Jóhannsson

Sérstakar þakkir fá // Special Thanks

Tónlistarsjóður styrkti útgáfuna – 1000 þakkir!

Unnusta mín fyrir að hlusta á tónlistina mína og hvetja mig ávallt áfram.

Jonni hjá Reykjavík Records fyrir að taka plötu mína með opnum örmum og gefa hana út.

Hrafnkell fyrir að vera mikill drifkraftur í að taka upp plötuna og hjálpa með útsetningu, platan hefði ekki verið jafn flott án hans vinnu.

Takk Stúdíó Réttarás!

Shopping Cart