Lúpína er tónlistarkona frá Íslandi og Noregi sem kom fyrst upp á sjónarsviðið haustið 2022 þegar hún gaf út sitt fyrsta lag ‘alein’. Síðan þá hefur hún heillað bæði innlendan og erlendan tónlistarheim með útgáfum á plötunum ‘ringluð’ árið 2023 og ‘MARGLYTTA’ árið 2024, jafnt sem framkomum á tónlistarhátíðum víða um heim. Þar á meðal má nefna Roskilde Festival í Danmörku, SXSW í Austin og Iceland Airwaves.
Tónlist lúpínu má lýsa sem tilraunakenndu lista poppi, með mikla áherslu á texta, raddanir og dínamískan hljóðheim. í dag er lúpína rísandi nafn í íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni.
EP platan ‘Light in the Dark’ eftir tónlistarkonuna lúpínu verður samin, tekin upp og gefin út sjálfstætt á stafrænu formi og í samstarfi við Reykjavík Record Shop á vínyl.
Ferlið byrjaði fyrri hluta árs 2025 þegar meirihluti laganna var saminn og demó útgáfur framleiddar. Haustið og veturinn 2025 voru lögin fínpússuð og upptökurnar unnar. lúpína, eða Nína Solveig Andersen semur og framleiðir öll lögin, annað hvort ein eða í samstarfi við annað tónlistarfólk. Bandaríski lagahöfundurinn Claire Nichols er meðhöfundur tveggja texta á plötunni (lög nr. 3 og 6), og lagahöfundurinn og próduserinn Grímur Hjaltested Einarsson er meðhöfundur á einu lagi (lag nr. 6) og með-framleiðandi á 3 lögum (lög nr. 1, 4 og 6). Lagið Lifeline var samið í lagasmíðarbúðunum Oslo Songwriting Camp síðastliðið sumar og eru því 3 meðhöfundar á því lagi, og með-framleiðandinn Lasse Midtsian Nymann.
Platan fjallar um litlu vonarljósin á erfiðum tímum. Lögin voru samin á miklum óvissu tímum en skína öll ljósi á það jákvæða og bjarta sem kemur okkur í gegnum dekkri tíma. Textinn “when dark gets even more dark I weirdly get hopeful, ‘cause one ray of sunshine can light up the whole room” í laginu Hoping lýsir plötunni vel. Hin lögin fjalla um listina að setja sér mörk (Paint), listina að spyrja um hjálp (Lifeline), að fylgja eigin hjarta og draumum (The Rain Goes Up) og að vona að lognið fyrir storminn endist endalaust (Fairytales Shouldn’t End). Hljóðheimar lagana eru að miklu leiti unnir útfrá raddupptökum, og notar lúpína radd sömpl, lúppur og fleiri lög (e. layers) af röddunum sem aðal hljóðfærið í gegnum
alla plötuna.






