lúpína – Light in the Dark (+bolur og 4 póstkort)

11.000kr.

Reykjavík Record Shop og lúpína tilkynna um útgáfu EP plötunnar ‘Light in the Dark’. Platan inniheldur 6 frumsamin lög, að mestu leyti á ensku, sem er gefin út þann 22. maí  á streymisveitum og í samstarfi með Reykjavík Record Shop á vínyl. Platan er frumraun lúpínu í lagasmíðum og flutning á ensku og fjallar hún um öll litlu ljósin sem birtast á dekkri tímum.  Tónlist lúpínu má lýsa sem tilraunakenndu lista poppi, með mikla áherslu á texta, raddanir og dínamískan hljóðheim. í dag er lúpína rísandi nafn í íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni.

EP platan ‘Light in the Dark’ eftir tónlistarkonuna lúpínu er samin, tekin upp og gefin út sjálfstætt á stafrænu formi og í samstarfi við Reykjavík Record Shop á vínyl.   Platan er að mestu leyti samin og framleidd (e. produced) af lúpínu, en einnig eru lög unnin í samstarfi við annað innlent og erlent tónlistarfólk. Vandað er til verka við útgáfuna og með plötunni fylgir textablað.

Með þessum pakka fylgir bolur og fjögur póstkort.

Einnig er hægt að kaupa plötuna með bol og án póstkorta – smelltu hér.

Einnig er hægt að kaupa plötuna staka – smelltu hér.

Light in the Dark kemur út 22. maí og kemur svo út á vínyl 29. maí.

A1 Hoping
A2 The Rain Goes Up
A3 Paint
B1 Lifeline
B2 Sjáumst
B3 Fairytales Shouldn’t End
Vörunúmer: RRS-86 Flokkar: ,

Lúpína er tónlistarkona frá Íslandi og Noregi sem kom fyrst upp á sjónarsviðið haustið 2022 þegar hún gaf út sitt fyrsta lag ‘alein’. Síðan þá hefur hún heillað bæði innlendan og erlendan tónlistarheim með útgáfum á plötunum ‘ringluð’ árið 2023 og ‘MARGLYTTA’ árið 2024, jafnt sem framkomum á tónlistarhátíðum víða um heim. Þar á meðal má nefna Roskilde Festival í Danmörku, SXSW í Austin og Iceland Airwaves.

Tónlist lúpínu má lýsa sem tilraunakenndu lista poppi, með mikla áherslu á texta, raddanir og dínamískan hljóðheim. í dag er lúpína rísandi nafn í íslensku og alþjóðlegu tónlistarsenunni.

EP platan ‘Light in the Dark’ eftir tónlistarkonuna lúpínu verður samin, tekin upp og gefin út sjálfstætt á stafrænu formi og í samstarfi við Reykjavík Record Shop á vínyl.

Platan fjallar um litlu vonarljósin á erfiðum tímum. Lögin voru samin á miklum óvissu tímum en skína öll ljósi á það jákvæða og bjarta sem kemur okkur í gegnum dekkri tíma. Textinn “when dark gets even more dark I weirdly get hopeful, ‘cause one ray of sunshine can light up the whole room” í laginu Hoping lýsir plötunni vel. Hin lögin fjalla um listina að setja sér mörk (Paint), listina að spyrja um hjálp (Lifeline), að fylgja eigin hjarta og draumum (The Rain Goes Up) og að vona að lognið fyrir storminn endist endalaust (Fairytales Shouldn’t End). Hljóðheimar lagana eru að miklu leiti unnir útfrá raddupptökum, og notar lúpína radd sömpl, lúppur og fleiri lög (e. layers) af röddunum sem aðal hljóðfærið í gegnum
alla plötuna.

Áritun

Með áritun, Án áritunar

Stærð á bol

S, M, L, XL

Shopping Cart