Reykjavík Record Shop kynnir nýjustu útgáfu tónlistarmannsins Þóris Georgs, „Cheer up“.
Á plötunni er að finna 10 lög af heimasmíðuðu skynvillupoppi undir áhrifum síkadelíu sjöunda áratugarins og nýbylgju tíunda áratugarins. Öll lög og textar eru eftir Þóri sjálfan og plötuna vann hann sjálfur í heimahljóðveri sínu. Tónlistarstílinn er sem einkennir þessa plötu er lo-fi, síkadelískt popp sem er kjörið nfyrir aðdáendur Harry Nilson, Daniel Johnston, Stephen Malkmus og Syd Barrett.
Þórir Georg hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi frá upphafi þessarar aldar og getið sér gott orð, bæði sem drifkraftur í jaðartónlistarmenningu landsins og sem framúrskarandi lagahöfundur fær um að leika sér með hinar ýmsu stefnur og stíla.
Textarnir á plötunni eru allir á ensku í þetta skiptið og eru hin hefðbundna blanda Þóris af heimsósóma og absúrdískum húmor, því þó að útlitið sé ansi svart á köflum er þó alltaf að finna einhvern vonarneista í lögunum.
Umslag plötunnar hannaði Þórir sjálfur en auk þess að búa til tónlist er hann bæði myndlistarmaður og grafískur hönnuður.









