Tónlistin á þessari plötu var samin fyrir myndina „Einstök börn og fullorðnir“.
Hún fjallar um líf Hrafnkels, Inga og Bernharðs sem eiga það sameiginlegt að vera börn sem glíma við sjaldgæfan sjúkdóm.
Börnum og fjölskyldum barna með sjaldgæfa sjúkdóma er hætt við að lenda utanveltu bæði í félags- og heilbrigðiskerfum samfélagsins.
Samtökin „Einstök börn“ eru stuðningsfélag þessara einstaklinga.
Allur ágóði þessarar útgáfu rennur til þeirra – auk þess má styrkja þau með beinum fjárframlögum í gegnum síðu þeirra www.einstokborn.is.