Fyrsta plata Benna Hemm Hemm kemur út hjá Reykjavík Record Shop í fyrsta sinn á vínyl en platan fagnar 20 ára afmæli sínu í ár en platan var upphaflega gefin út árið 2005. Benni Hemm Hemm hafði þá verið til í tvö ár.
Gefum Benna orðið: „Platan var tekin upp í tveimur stúdíóum með frábæru upptökufólki og hvirfilbylurinn í kringum gerð hennar einkenndist af krafti og miklum vilja til að gera eitthvað alveg sérstakt í bland við það að ég hafði ekki hugmynd um hversu stóra laug ég hafði stokkið útí.“
Ingi Garðar Erlendsson, alt-hornleikari hljómsveitarinnar, vínilplötu- áhugamaður og stjórnandi Skólahljómsveitar Vesturbæjar og Miðbæjar, vildi halda upp á 20 ára afmæli plötunnar með því að halda tónleika þar sem SVoM myndi spila alla plötuna og sótti það einarðlega að platan yrði gefin út á vínyl í tilefni af afmælinu. Ef þú ert að lesa þennan texta hefur það tekist en Benni kom að máli við Jóhann Ágúst Jóhannsson, eiganda Reykjavík Record Shop, um að sjá um útgáfuhliðina en Jóhann tók einmitt þátt í að dreifa plötunni þegar hún kom fyrst út á geisladiski árið 2005.
Skólahljómsveit Vestur- og Miðbæjar, Benni Hemm Hemm og Kórinn leiða saman hesta sína og blása til stórtónleika þann 24.maí í Háskólabíó. C-sveit SVoM undir stjórn Inga Garðars Erlendssonar, Kórinn og Benni Hemm Hemm ætla að flytja fyrstu plötu Benna Hemm Hemm eins og hún leggur sig.
Hlekkur á miðasölu hjá Tix.is: https://tix.is/event/19522/svom-asamt-benna-hemm-hemm-kornum
Skólahljómsveit vesturbæjar og miðbæjar hefur getið sér gott orð undir líflegri stjórn Inga Garðars Erlendssonar. Hljómsveitin kemur víða fram á stórum og smáum viðburðum. Af nýlegum verkefnum sveitarinnar má nefna samstarf við hljómsveitina Sigur Rós, flutningur tónlistar í leikritinu Fíusól og í dansverki íslenska dansflokksins Hringir Orfeusar og annað slúður.
Kórinn var stofnaður í kringum verkefnið Ljósið og Ruslið sem sýnt var í Tjarnabíó við góðan orðstír á síðasta ári. Kórinn samanstendur af allskonar konum. Sumar eru tónlistarkonur og/eða hafa reynslu af því að syngja í kór. Aðrar eru dansarar og danshöfundar eða sviðslistakonur og enn aðrar eru bara forvitnar og framsæknar konur sem langaði að vera með. Svona stór kvennakór af svona ólíkum konum hefur mjög margt að segja við áhorfendur og áheyrendur sína. – „Hinn dýrðlegi kór sterkra persónuleika sem söng með Benna lét mig skynja fegurð hversdagsleikans af nýrri og áður óþekktri dýpt.“ – Sigrún Hrólfsdóttir
Hér er um einstakan viðburð að ræða sem engin ætti að láta framhjá sér fara. Almennt miðaverð er 3.000 kr. en í boði er að kaupa sérstaka styrktarmiða sem renna í ferðasjóð SVoM en skólahljómsveitin stefnir á landvinninga á meginlandinu í sumar.