ÚTSALA TIL OG MEÐ 15. FEB. 20% AFSLÁTTUR AF FLESTUM VÖRUM.
Tilboð!

Gaddavír – Akranes krú

Original price was: 5.299kr..Current price is: 4.299kr..

Önnur breiðskífa Gaddavírs kemur út 27. mars og fyrsta pressa kemur á svakalega flottum hvítum og rauðum splattervínyl. Platan verður á forsöluafslætti út mars.

A1 Krepptur hnefi
A2 Gúrkutíð
A3 Blossi
A4 Kalt blóð
A5 Strompurinn
B1 Akranes krú
B2 Úrhrak
B3 Síðasta blokkin í mýrinni
B4 Heimsendir

Vörunúmer: RRS-079 Flokkar: ,

Gaddavír er fimm manna hljómsveit frá Akranesi. Tónlistin þeirra er harðkjarnapönk í grunninn með góðum skammti af skítugu rokk og ról. Útkoman er eitthvað sem líkist crossover-þrass en er örlítið frumstæðara. Svipað og harðkjarnapönk af gamla skólanum með viðbættum gítarsólóum og þéttari spilamennsku.

Gaddavír birtust fyrst í íslensku jaðarsenunni árið 2017 með útgáfu fyrstu smáskífunnar sinnar „Lífið er refsing“ og goðsagnakenndum off venue tónleikum á Eistnaflugi á yfirgefnum pizzastað. Þeir komu með ferskan andblæ inn í íslensku senuna, með áherslu á hraða og ákefð frekar en þyngsli og ofuralvarleika.

Gaddavír gaf út fyrstu breiðskífuna sína „Haltu kjafti, ég hef það fínt“ í apríl 2022 á vínyl í gegnum Reykjavík Record Shop, sem og á kassettu og streymisveitum í gegnum Akranes DIY útgáfunni Ægisbraut Records (sem er að hluta til rekið af Kristjáni og Bergi).

Eftir fjölmarga tónleika á Íslandi (þar á meðal á Eistnaflugi, Norðanpaunki og Sátunni) og á meginlandi Evrópu (þar á meðal að keppa fyrir hönd Íslands á Wacken Metal Battle), hefur hljómsveitin í hyggju að halda við orðspor sitt og stækka það. Alltaf að skipuleggja eitthvað nýtt, og alltaf á eigin forsendum.

Ferlið við að semja nýju plötuna hófst stuttu eftir útgáfu þeirrar fyrri og meðvituð ákvörðun var tekin um að semja meira af þungarokkskenndum riffum en halda samt í þennan harðkjarnapönk grunn sem þeir eru þekktir fyrir. Flestir textar á fyrstu plötunni voru samdir á meðan Kristján (söngvari) var í sjálfskipaðri einangrun í verkalýðsfélagsbústað. Þar sem þetta virkaði svo vel síðast var sama aðferðin tekin upp aftur, þó innblásturinn sé víðtækari að þessu sinni.

Fyrsta platan sækir innblástur frá persónulegum upplifunum. Sú nýja gerir það enn, en hún er einnig mjög innblásin af reynslu, fólki og sögum í steinsteypufrumskóginum sem er Akranes.

Platan var tekin upp með hléum yfir einn mánuð, en meirihlutinn var tekin upp yfir eina helgi. Platan var tekin upp af Ægi Sindra Bjarnasyni í R6013.
————
Gaddavír is a five-piece band from Akranes, Iceland. Their music is hardcore punk at its core with a healthy dosage of dirty rock n‘ roll and heavy metal mixed in. This results in something akin to crossover thrash but more primitive, similar to old school hardcore punk but throw in guitar solos, tighter playing, and modern sensibilities.

Gaddavír burst into the Icelandic underground scene in 2017 with their release of their first EP “Lífið er refsing“ and a somewhat mythical off venue performance at the Eistnaflug metal festival in an abandoned pizza restaurant. They brought in a much needed breath of fresh air to the Icelandic scene in a sense, focusing on fast and intense songwriting rather than heaviness and over-seriousness.

Gaddavír released their full length LP “Haltu kjafti, ég hef það fínt“ in April 2022 on vinyl throughReykjavík Record Shop, as well as on cassette tape and most streaming services through Akranes DIY label Ægisbraut Records (partly run by Kristján and Bergur).

After numerous shows in Iceland (Including performances at the prestigious Eistnaflug, Norðanpaunk, and Sátan festivals) as well as in mainland Europe (including competing on behalf of Iceland at the Wacken Metal Battle), the band has every intention of keeping up with their reputation and expanding on it. Always planning something new, and always on their own terms.

The process of writing the new record started shortly after the release of the previous one, and a conscious decision was made to write more metallic riffs while keeping a strictly hardcore punk edge. Most of the lyrics on the first record were written while Kristján (vocalist) was self isolating in a summer cabin owned by his workers’ union. Since it worked so well the last time, the same approach was taken again. Although the inspirations are wider this time.

The first LP draws from deeply personal experiences. The new one still does, but it is also heavily inspired by people and stories in the cement jungle that is their hometown of Akranes.

The record was recorded sporadically over the course of one month, with the bulk of the work being done over one weekend. The album was recorded by the band’s favorite person, Ægir Sindri Bjarnason, in the legendary Reykjavík DIY venue R6013.

Shopping Cart