Hekla – Turnar

5.199kr.

A1 Inni
A2 Kyrrð
A3 Ókyrrð
A4 Var
B1 Í ösku og eldi
B2 Ólga
B3 Graminn
B4 Flækjur

Vörunúmer: PHNTM 42 Flokkar: ,

Turnar er þriðja breiðskífa Heklu þar sem hún snýr aftur með hinn magnþrungna hljóðheim þermínsins en platan er stór, marglaga og hljóðheimurinn bæði yfirnáttúrlegur, spennandi og drungalegur. Á plötunni bætir hún við sellói, rödd og kirkjuorgeli sem framkalla einstaka töfra,

Platan var að hluta til tekin upp í (og nefnd eftir) miðalda kastalaturni í dreifbýli Frakklands og áhrifin leyna sér ekki eins og Hekla segir sjálf „þeramínið opnar eins konar gátt inn í nýtt ríki sem bæði horfir inn í myrkan gamlan heim og til framtíðar.”

Turnar er virkilega áhrifarík platan sem er til skiptis undursamlega fallegt og ógnvekjandi ferðalag inn í undraheima en Hekla er einstaklega fær þeramínleikari og þetta leyndardómsfulla rafhljóðfæri er algjörlega einstakt. Það er fámennur hópur tónlistarmanna sem hefur náð jafn undraverðum tökum og Hekla á dulrænum leyndardómum þeramínsins og leikur Heklu spannar gríðarlegt svið, allt frá hljóðum sem minna á skrítinn fuglasöng yfir í kraftmikla bassatóna og drunur.

Hekla á víða aðdáendur eins og Iggy Pop og PJ Harvey sem líkir stíl hennar við ekki ómerkara ónlistarfólk eins og Colleen, Julia Holter og Jóhann Jóhannsson.

Hekla mun hita upp fyrir bresku hljómsveinta autechre þann 15. ágúst í Silfurbergi Hörpu. Miðasala er á Tix.

Dómar um Heklu:

„this is music for the depths of night and the soul, music of desolation and heartfelt prayer, music for long winters yearning for spring.“
A closer listen um Turnar

„Turnar is a glorious celebration of Hekla’s creativity, technique and balance.“
The Line of Best Fit, einkunn 90 / 100 um Turnar

„The Icelandic thereminist’s latest album finds new depths in the century-old instrument, forgoing its campy, sci-fi associations in favor of uncanny horror.“
Pitchfork, einkunn 76 /100

“Eerie, wailing sounds over distorted feedback drones… vibrato-heavy harmonies chirrup and throb in agonisingly slow motion.”
The Guardian, Album of the Month

“Cinematic… carefully orchestrated… delicately explores unfamiliar territory with uncanny finesse.”
The Wire

„I’ve never heard a theremin played so well.“
Iggy Pop, BBC 6 Music

Shopping Cart