Tilboð!

Hist Og – Hist highness

Original price was: 5.199kr..Current price is: 4.499kr..

Hist highness kemur út 11. júlí og er fjórða plata hist og. Ævintýralegt ferðalag þar sem kosmísk og seiðmagnaðir tónar lyfta andanum í hæstu hæðir.

Platan verður á forsölutilboði til 12. júlí á 4.499 kr. í stað 5.199 kr.

Útgáfutónleikar verða haldnir á Jazzhátíð í Reykjavík nánar tiltekið íí Austurbæ, laugardaginn 29. ágúst

A1 Bye Bye Blackbird
A2 Hambó
A3 Teide
A4 Ne me quitte pas
A5 Virkilega
B1 Iffy Fjuson
B2 Split
B3 Gleraugu
B4 Glingur
B5 Einhvers staðar einhvern tímann aftur

 

 

Vörunúmer: RRS-081 Flokkar: ,

Hist highness er fjórða plata jazztríósins hist og sem kemur út undir merkjum Reykjavík Record Shop en áður hafa komið út Days of Tundra (2019), hits of (2020), og holy ghost of (2023). Fyrri þrjár plötur sveitarinnar hafa hlotið frábær viðbrögð og fjölmargar tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Platan tekur á ýmsum aðkallandi málum hjartans, eins og þáttaskilum, brostnum hjörtum og hvernig fjarlægðir leysast upp undir stjörnubjörtum himni. Platan er tekin upp af Alberti Finnbogasyni í Sundlauginni í lifandi flutningi árið 2025. Auk nýrrar tónlistar eftir meðlimi inniheldur platan þrjá “standarda” eftir Jaques Brel, Magnús Eiríksson og Henderson/Dixon. Það er von hist og að platan muni verðlauna djúpa hlustun með aukinni framleiðni hlustenda, ásamt innsýn inn í fyrri líf, hliðarsjálf og almennri kvíðalosun. Hönnun umslags var í höndum Þóris Georgs, en mynd á umslagi á Héðinn Finnsson

Hist og er íslensk jazztríó sem var stofnað árið 2017 af Eiríki Orra Ólafssyni trompetleikara, Róbertu Andersen gítarleikara og Magnúsi Trygvasyni Eliassen trommuleikara. Tríóið hefur markað sér sess í jazztónlistar senu Íslands sem náið, framsækið tríó sem tengir saman þræði vítt og breitt um lendur tónlistarinnar. Í tónlist hist og má heyra raftónlist, jazz, tilraunarokk og spuna, allt í einni bendu. Hist og hefur verið ötult í plötuútgáfu og tónleikahaldi allt frá stofnun og hefur gefið út þrjár plötur sem allar hafa hlotið tilnefningu til Íslensku Tónlistarverðlaunanna. Í júlí 2026 mun svo fjórða plata tríósins koma út, “hist highness”. Tríóið sækist eftir að brúa bilið milli raftónlistar, jazz, tilraunarokks og spuna – en allir meðlimir tríósins hafa svalað þorsta sínum úr gnægtarbrunnum ólíkra tónlistarstefna í gegnum árin. Meðlimir hist og hafa starfað með fjölmörgum ólíkum tónlistarmönnum, allt frá múm, amiinu, Sigur Rós og Moses Hightower yfir í Hilmar Jensson, Stórsveit Reykjavíkur og ADHD.

Þér gæti einnig líkað við…

Shopping Cart