Tilboð!

Páll Óskar & Monika – Himnesk jól

Original price was: 6.999kr..Current price is: 5.999kr..

ATH: Um forsölu er að ræða. Áætlað er að Himnesk jól út 2. desember

Páll Óskar Hjálmtýsson og hörpuleikarinn Monika Abendroth hafa haldið vinsæla jólatónleika saman í gegnum tíðina, þar á meðal í Háteigskirkju, þar sem flutt eru bæði jólalög og klassísk lög Palla í sérstökum útsetningum fyrir hörpu, kór og strengi. Nú senda þau frá sér jólaplötu sem er upptaka úr Háteigskirkju frá því í fyrra.

A1 Morgunstjarnan
A2 Himinganga (lagið úr Snjókarlinum)
A3 Dansaðu vindur
A4 Jólasnjór
A5 Jólin koma með þér
A6 Jólakvöld (ásamt Diddú)
B1 Það brennur (ásamt Diddú)
B2 Það snjóar
B3 Ást fyrir tvo
B4 A spaceman came travelling
B5 Ég höfði lýt á jólanótt
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: ,

Fallegasta jólaplata ársins er mætt í sparifötum á rauðum vinyl. Páll Óskar & Monika héldu sína síðustu jólatónleika í Háteigskirkju jólin 2025, eftir sleitulaust jólatónleikahald sem hófst árið 2002. Tónleikarnir voru teknir upp þegar áhorfendur voru farnir heim úr kirkjunni, svo hér fáið þið ekta jólatónleika stemningu beint heim í stofu án þess að áhorfendur klappi á milli laga. Páll Óskar & Monika hörpuleikari fengu til liðs við sig strengjakvartett og kammerkórinn Huldur undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar. Gestur þessara tónleika var Diddú, stóra systir Páls Óskars. Útkoman er tónlistargaldur sem er í senn hátíðlegur, heillandi og fullkomin hljóðrás fyrir öll heimili á jólum og aðventu.

Pantaðu plötuna strax í forsölu og fáðu hana áritaða á sérstöku tilboði hjá Reykjavík Record Shop.
Útgáfudagur 2. desember 2026
Útgáfa og dreifing: POP ehf.

Með eða án áritunar

Með áritun, Án áritunar

Shopping Cart