Um Collage
Collage er eiginlega fyrsta stóra platan hans Sölva Kolbeinssonar en hann hefur spilað inn á margar plötur, í aukahlutverki og í samstarfi við aðra listamenn en þetta er fyrsta platan sem hann geri í eigin nafni og kemur út á föstu formi, einungis með lögum eftir hann.
Sölvi er þó ekki eini flytjandinn en með honum eru engir aðrir en gítargoðsögnin Hilmar Jensson og slagverksmeistarinn Magnús Trygvason Eliassen. Tríóið varð til út frá dúói þeirra Magga sem voru paraðir saman við Hilmar á Jazzhátíð 2020 og spiluðum stórskemmtilega tónleika. Til að byrja með spiluðum þeir uppáhalds lög eftir aðra en fókusinn færðist fljótlega yfir á tónsmíðar Sölva. Eftir að spila fleiri tónleika og prófa allskonar hélt tríóið í hljóðver desember 2024.
Á plötunni má finna 8 lög og 3 interlúdur. Þetta er tilraunakenndur djass innblásin af tíma Sölva í Berlín og Kaupmannahöfn ásamt því að flytja aftur heim til Íslands. Lögin eru ólík og lítur Sölvi á þau eins og mismunandi myndir þar sem hver og ein mynd er með eigin stemningu og sterk karaktereinkenni. Einhvernmeginn skapa þessar svipmyndir svo eina heildstæða mynd og þaðan kemur titill plötunnar.
Öll lög eru eftir Sölva Kolbeinsson sem leikur á Alto Sax og B-flatt klarinett.
Hilmar Jensson leikur á rafmagnsgítar
Magnús Trygvason Eliassen leikur á trommur og slagverk
Albert Finnbogason hljóðritaði og hljóðblandaði plötuna
Ívar Ragnarsson sá um hljóðjöfnun
Andrea Dagbjört Vatnsdal Pálsdóttir gerði myndir og plötuumslag
Útgefandi Reykjavík Record Shop
Sölvi Kolbeinsson vill þakka Magga og Hilmari fyrir spileríið, Albert Finnboga fyrir upptökur og mix, Ívar Bongó fyrir hljóðjöfnun og Andreu fyrir frábært kover <3 Síðast en ekki síst, takk Jonni í Reykjavík Record Shop fyrir útgáfuna og að styðja við útgáfu á nýrri tilraunakenndri íslenskri tónlist.
Um Sölva Kolbeinsson
Sölvi Kolbeinsson (f. 1996) er saxófónleikari og tónskáld. Hann stundaði klassískt saxófónnám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskólanum í Reykjavík en rytmískt nám í Tónlistarskóla FÍH og Jazz-Institut Berlin þaðan sem hann lauk BA námi sumarið 2019.
Hann er meðlimur í mörgum ólíkum hópum á Íslandi og víðar. Þar má nefna dúó með trommaranum Magnúsi Trygvasyni Eliassen, Camus kvartett, Mánudjass, Guiding star orchestra, Hamamelidae, Volcano bjorn og Windisch quartet. Sölvi hefur spilað á djasshátíðum í Kanada, Þýskalandi, Finnlandi, Noregi, Danmörku og á Íslandi auk þess að hafa komið fram í fjölda annara landa.
Hann hefur gefið út tvær plötur einungis með eigin tónsmíðum: Live in Berlin (2022) og August (2021). Hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2016 sem bjartasta vonin í flokknum Djass- og blústónlist. Frá hausti 2023 kennir Sölvi á saxófón og klarinett í Skólahljómsveit Grafarvogs og Tónskóla Sigursveins.









