Tilboð!

Þórir Georg – Cheer Up

Price range: 4.500kr. through 12.000kr.

ATH: Um forsölu er að ræða. Cheer Up kemur út í byrjun september.

Nýju plötuna frá Þóri Georg, Cheer Up, er nú hægt að panta í forsölu frá Reykjavík Record Shop. Platan kemur út í þremur útgáfum:

  • Á svörtum vinyl
  • Á gulum vinyl í takmörkuðu upplagi
  • Og á gulum vinyl, í takmörkuðu upplagi, auk prentverks eftir Þóri Georg sem er númerað, auk geisladisks með fimm óútgefnum lögum sem koma út stafrænt síðar. ATH: Aðeins 10 slík eintök í boði og kosta 12.000 kr.

A1 Hell or highwater
A2 The Devils
A3 What do you say?
A4 Not certain
A5 The Blood
B1 Someone else
B2 Look up
B3 Wallet + keys
B4 Dancing
B5 The Dark

Vörunúmer: RRS-083 Flokkar: ,

Reykjavík Record Shop kynnir nýjustu útgáfu tónlistarmannsins Þóris Georgs, „Cheer up“.

Á plötunni er að finna 10 lög af heimasmíðuðu skynvillupoppi undir áhrifum síkadelíu sjöunda áratugarins og nýbylgju tíunda áratugarins. Öll lög og textar eru eftir Þóri sjálfan og plötuna vann hann sjálfur í heimahljóðveri sínu. Tónlistarstílinn er sem einkennir þessa plötu er lo-fi, síkadelískt popp sem er kjörið nfyrir aðdáendur Harry Nilson, Daniel Johnston, Stephen Malkmus og Syd Barrett.

Þórir Georg hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi frá upphafi þessarar aldar og getið sér gott orð, bæði sem drifkraftur í jaðartónlistarmenningu landsins og sem framúrskarandi lagahöfundur fær um að leika sér með hinar ýmsu stefnur og stíla.

Textarnir á plötunni eru allir á ensku í þetta skiptið og eru hin hefðbundna blanda Þóris af heimsósóma og absúrdískum húmor, því þó að útlitið sé ansi svart á köflum er þó alltaf að finna einhvern vonarneista í lögunum.

Umslag plötunnar hannaði Þórir sjálfur en auk þess að búa til tónlist er hann bæði myndlistarmaður og grafískur hönnuður.

Útgáfa

Svört vinyl plata, Gul vinyl plata, Gul vinyl plata + prentverk + CD

Þér gæti einnig líkað við…

Shopping Cart