Platan sem gerði Pál Óskar að poppstjörnu, „Seif“ (1996) er mætt á svæðið í 30 ára hátíðarútgáfu á neon grænum vinyl og upprunalegi geisladiskurinn fylgir líka með hverju eintaki. Smellir eins og „Stanslaust stuð“, „Bundinn fastur“, „Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt“ og „Horfðu á mig“ trylla dansgólf enn þann dag í dag og eldast gríðarlega vel. Meistarakokkar á borð við Trausta Haraldsson (Bundinn fastur, Minn hinsti dans) Valgeir Sigurðsson (Tókst, Seif) og Jóhann Jóhannsson sáluga (Stanslaust stuð, Horfðu á mig, Hvítt drasl) ásamt Bjarka Jónssyni og Birki Björnssyni (Jafnvel þó við þekkjumst ekki neitt) sköpuðu þetta snilldarverk með Palla sem hljómar alveg jafn stórkostlega í dag og fyrir 30 árum síðan. Eurovision lagi Páls Óskars „Minn hinsti dans“ er bætt við þessa útgáfu, því lagið sem breytti Eurovision á svo sannarlega heima á „Seif“.
Þetta er fullkomin gjöf fyrir alla aðdáendur Palla, og alla þá sem muna hvar þeir voru árið 1996. Skelltu bestu íslensku 90s plötunni á fóninn, í fyrsta sinn á vinyl.
Pantaðu plötuna strax í forsölu og fáðu hana áritaða á sérstöku tilboði hjá Reykjavík Record Shop.
Útgáfudagur 2. desember 2026
Útgáfa og dreifing: POP ehf










