GDRN & Magnús Jóhann – Tíu íslensk sönglög

4.900kr.

A1 Einhvers staðar einhvern tímann aftur
A2 700 þúsund stólar
A3 Hjarta mitt
A4 Ég veit þú kemur
A5 Hvert örstutt spor
B1 Vikivaki
B2 Ó, þú
B3 Rósin
B4 Leiðin okkar allra
B5 Morgunsól

Vörunúmer: RRS-047 Flokkar: ,

Söngkonan GDRN og píanóleikarinn Magnús Jóhann hafa komið mikið fram undanfarin ár, bæði sem tvíeyki og með hljómsveit. Hljómplata þeirra hefur að geyma tíu lög sungin af GDRN við meðleik Magnúsar í útsetningum tvíeykisins. Á efnisskrá plötunnar eru ýmsar íslenskar tónlistarperlur á borð við Rósin, Hvert örstutt spor, Vikivaki og eitt frumsamið lag, Morgunsól. Hljómplatan er hugljúf og svífur hlýleg stemning yfir vötnum.

Söngkonan GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því að hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og aðra breiðskífu, GDRN, árið 2020. Seinni breiðskífu sína vann hún m.a í samstarfi við Magnús Jóhann en leiðir þeirra lágu saman í tónlistarskóla FÍH nokkrum árum áður. Magnús hefur verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár sem píanóleikari, upptökustjóri, tónskáld og ýmislegt fleira fyrir fjölda listamanna. Sömuleiðis hefur hann gefið út þrjár sólóplötur, eina stuttskífu og dúóplötu ásamt Skúla Sverrissyni, bassaleikara.

Veldu

Tíu íslensk sönglög, Tíu íslensk sönglög + Without Listening, Tíu íslensk sönglög + Án tillits, Tíu íslensk sönglög + Without Listening + Án tillits

Þér gæti einnig líkað við…

Shopping Cart