Reykjavík Records hafa þá ánægju að senda frá sér tvær langspilandi hljómplötur með einum fremsta listamanni okkar og gefst því þeim, er góðri tónlist unna, tækifæri til að fá á þessum tveimur hljómplötum mikið af því besta sem KK hefur gefið út á árunum 2000 til 2022.
Á þessum tveimur plötum eru alls 24 lög, þar af 17 eftir KK, 1 í samvinnu, 2 eftir aðra íslenska höfunda og 4 erlend lög. Að auki eru á plötunum fjögur lög er aldrei hafa komið út á breiðskífum áður. KK syngur og leikur með 34 af fremstu hljóðfæraleikurum og söngvurum landsins og 1 erlendum.
Upptökur fóru fram víðsvegar um landið og hefur ekkert verið til sparað til að þessar plötur yrðu sem best úr garði gerðar.
ATHUGIÐ AÐ AÐRAR KK PLÖTUR ERU Á 20% AFSLÆTTI EF ÞÆR ERU VERSLAÐAR MEÐ ÁRIN 2000 TIL 2022. AFSLÁTTUR REIKNAST SJÁLFKRAFA ÞEGAR VÖRUM ER BÆTT Í KÖRFU.